top of page
Handboltaskólinn í Kiel
Handboltaskólinn í Kiel eru æfingabúðir í eina viku þar sem krakkarnir búa í íþróttamiðstöð í þýska bænum Malente, skammt fyrir utan Kiel og æfa handknattleik við toppaðstæður. Aðstaðan er mjög glæsileg og er allt í sömu byggingunni, gistingin, maturinn, æfingarnar, fyrirlestrar og sundlaug.
Gist er í tveggja, þriggja og fjögurra manna herbergjum sem eru öll með baðherbergi með sturtu.
Hér er hlekkur á Íþróttamiðstöðina:
https://www.sport-bildungszentrum-malente.de/en/
Hér er myndband af Íþróttamiðstöðinni:
bottom of page